Hæhæ. sko á þriðjudaginn var sko svona námskeið sko söng og
leiklistar námskeið og það var *GG* gaman. við sko áttum fyrst að
fara í leiklistina og við áttum að öskra eins hátt og við getum.
fyrst fórum við bara að hlæja en svo sagði hann okkur að hlaupa
yfir og öskra þá virkaði þetta. svo bara áttum við að gera alls
kona hluti eins og fara yfir í baller+ínu hoppum og einhverju. svo
áttum við að kynna okkur og eitthvað við erum sko bara sjö í hópnum
en það e bara gaman. svo í söng áttum við að syngja lag hvert og
eitt en við Eydís sungum saman fyrstu þrjú erindin í Stundum úr
Óvitum. svo fengum við lög og við áttum að æfa öll en velja eitt
lag til að læra utan af og í fékk sko Því ástin, Strengjadans og
strokustelpan sem er úr leikriti sem Versló setti upp sem hét to
the jungle. enginn fékk samt sömu lögin.
svo í gær eða sko á laugardaginn þá fór bekkurinn á skauta og
svo ætluðum við á bláu könnuna að hitta Grétu en ég er svo mikill
snillingur á skautum að þegar ég var að sveigja framhjá Birtu og
Klöru í svona krappri beyju en ég er svo rosa góð á skautum að ég
náði ekki alveg beyjuni og datt. svo að núna er ég tognuð. Jakob
fór að tína snjó í poka af svellinu. því að það vantaði
kælipoka sko pabbi hans bað hann um það. fullorðna fólkið vildi
láta fara með mig upp á sjúkrahús og láta taka mynd en mig langaði
ekki því að við gætum þurft að bíða í meira en klukkutíma. svo við
fórum á Bláu könnuna og það fyrsta sem Gréta sagði við mig var sko
: æi meiddirðu þig ég man að þegar ég var að kenna varstu alltaf að
meiða þig. sem var ekki beint að hjálpa til. svo var mamma eitthvað
að sega mér að það væri miklu verra að togna en fótbrotna sem er
náttúrulega satt og að hún fyndi enn þá til í stundum í fætinum
þegar hún dettur og það eru ábyggilega mörg ár síðan hún
tognaði kannski ekki einmitt það sem ég væri til í að heyra
akkúrat á þessu augnabliki.
en allavega núna er ég bara teypuð
og fer ekki í íþróttið á miðvikudaginn. svo bara eitthvað en ég
vona að ég verði ekki lengur eins hölt á þriðjudags kvöldið út af
námskeiðinu.
bæbæ
Kveðja Sonja