mér líður illa. Vignir gerir svo mikið mál útaf einu endurskinmerki og þar af leiðandi eiðilagði hann daginn gjörsamlega fyrir mér og mér líður illa.
við sko vorum að skipta endurskinmerkjum því að við fengum þau í skólanum eftir samfélagsfræði tíma. svo skipti vignir COOL-merkinu sínu fyrir eitthvað og svo fékk ég það. svo í danstímanum vildi hann fá það aftur til baka en ég sagði að hann var búinn að skipta því og hann gæti ekki fengið það aftur. svo kastaði viðar bolta í mig en ég hélt að það hefði verið jakob því hann stóð næst mér með skó, hló að mér og sagði mér að láta vignir hafa merkið svo ég labbaði bara yfir mat. svo sagði ég Maríu þetta sem sagði Örnu og þær voru að rífa kjaft við strákana og þeir voru með svo mikla stæla að arna var reið, mjög reið. svo sagði María Salóme sem sagði klöru og Birtu að Jakob hafði barið mig með skó í hausinn en ég var ekki einu sinni viss. svo fór ég að gráta og Alda þurfti endilega að fá að vita allt og Örnu leið líka illa svo hún fór líka að gráta og Gugga líka sem lét mér líða ennþá verr. Alda talaði við Jakob því að ég sagði henni að ég hafi haldið að hann hafi barið mig í hausinn og hann varð brjálaður og blótaði og talaði við kalla skólastjóra og svo fórum við í tíma og vorum í ensku prófi sem átti að vinna saman tvö og tvö í og ég lenti sem betur fer með Maríu í staðinn fyrir einhvern strák. svo talaði kalli við Anítu og Kalli vildi fá að tala við mig svo þegar ég var búin í prófinu fór ég til hans en sagðist vera að fara á klóstið því að ég vildi ekki að neinn annar vissi þetta því að ég hélt að hann ætlaði að fara að skamma mig sem hann gerði ekki sem betur fer. hann talaði við um mig að ég og jakob ættum að tala saman því að hann hafði verið alveg brjálaðu en ég vildi ekki fá hann inn ég sagðist bara ætla að biðjast fyrirgefningar þegar skólinn væri búinn svo var hann eitthvað að tala um hvað ég væri sterk og klár stelpa og svo leið mér miklu betur. eftir tímann baðst ég svo fyrirgefningar og svo kom ég heim og ég er núna að skrifa þetta. Aldrei gera mikið mál útaf endurskinmerki það getur eiðilagt daginn hjá öðrum sem jafnvel kemu þessu ekki neitt við. svo var ég kosinn skrifari vikunar
kv: Sonja