hæhæ. það var danssýning á föstudaginn fyrir sjötta til tíunda bekk og það var gaman. við eða sko sjötti bekku sýndum rúmbu og cha cha og ég dansaði við Óla. ég þurfti að stjórna því hann var ekki alveg klár á þessu öllu saman svo sparkaði han í mig á æfingu sem betur fer ekki á sýningunni sjálfri. en annars var þetta fjör og það var bara gaman því að þetta tengdist tónlist og dans eh eh
Laugardagur
á laugardaginn vaknaði ég um morguninn og fékk mér að borða. svo fóru mamma og María í eitthvað jólaföndur á yngstastigi og svo bara komu þær heim. eftir það fórum við beint í bæinn í graut til ömmu Örnu. eftir það náðum við í laufabrauðs svona deig sem var búið að fletja út og Anton. svo bara fórum við heim að skera út laufabrauð og steikja það. svo borðaði Anton með okkur og svo skutlaði mamma honum heim til sín hann sko býr í bænum.
mér fynnst eitthvað svo asnalegt að stóri bróðir minn er að hitta uppáhalds leikarann minn (sem allir vita hvar er) svona eginlega dagsdaglega eða svona nokkurnveginn á meðan ég er búin að hitta hann þrisvar sinnum síðan í maí.
kv Sonja